Verkefni

Nýbyggingar

Skoðaðu nýjustu verkefnin okkar og kynntu þér nýbyggingar sem eru í vinnslu.

Áshamar 2-10
Í byggingu

Áshamar 2-10

Hafnarfjörður

Áshamar Fullbúnar íbúðir til sölu, til afhendingar strax! Til sölu glæsilegar íbúðir við Áshamar 2-10 í Hamranesi í Hafnarfirði. Í húsunum eru 140 íbúðir, allt frá tveggja herbergja til fjögurra herbergja íbúða. Íbúðirnar eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi – afhendast fullbúnar með gólfefnum. Glæsilegt hverfi í nágrenni við stórkostlega náttúru, Hvaleyrarvatn, Helgafell, Kleifarvatn o.fl. Svansvottaðar íbúðir Svanurinn er norrænt vottunarkerfi sem leggur áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum bygginga og bæta auðlindanýtingu. Svansvottun gerir ríkar kröfur til orkunýtingar byggingar, gæðastjórnun í byggingarferlinu og notkun öruggra og umhverfisvænna efna í byggingar.

Skoða verkefni
Áshamar 12-26
Í byggingu

Áshamar 12-26

Hafnarfjörður

Áshamar 12-26 í Hamranesi er kjarni sex nútímalegra fjölbýlishúsa með 154 íbúðum í hverfi þar sem þegar hefur byggð upp þjónusta fyrir íbúa. Byggingarnar eru Svansvottaðar. Vellirnir og Skarðshlíð skarta tveimur grunnskólum og fjórum leikskólum en einnig er gert ráð fyrir að það komi nýr grunnskóli og tveir fjögurra deilda leikskólar, auk hjúkrunar- og heilsugæslustöðvar í Hamranesið. Íbúðirnar eru tveggja til fjögurra herbergja og gefa möguleika á að bæta við herbergi. Hér er breitt úrval fyrir allar gerðir fjölskyldna þar sem hugað er að öryggi í umferðinni með góðum göngustígum og gangnakerfi. Húsin eru nærri náttúruperlum sem eru vinsælar til útivistar.

Skoða verkefni
Baughamar 1
Í byggingu

Baughamar 1

Hafnarfjörður

Til sölu glæsilegar íbúðir við Baughamar 1 í Hafnarfirði. Í húsinu er 33 íbúðir, allt frá tveggja til fjögurra herbergja íbúðir. Þær afhendast fullbúnar án gólfefna. Lögð er áhersla á vandaðar íbúðir með góða hljóðvist og góðum loftgæðum. Eldhúsinnréttingar eru frá þýska framleiðandanum Nobilia, umboðsaðili er GKS. Eldhús er fullbúið tækjum eins og helluborði, viftu, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþottavél og ofni. Mikil áhersla er lögð á vandaðan frágang utanhúss. Merkt bílastæði fylgir íbúð á lóð eða í lokuðu bílastæðahúsi. Baughamar er Svansvottað og hönnun tekur mið af gæðum og endingu. Baughamar er staðsettur í dalverpi umlukið Skarðshlíð til norðurs, Vatnshlíð til austurs og Hamranesi til suðurs. Einn helsti styrkur hverfisins er nálægð þess við náttúrulega umgjörð, fagurt landslag sem einkennist af aflíðandi gróinni hlíð (Skarðshlíð) til suðurs og austur, hraunbreiðum í svæðinu miðju og svipsterkum klettavegg í suðvesturs.

Skoða verkefni
Bolholt 7-9
Í byggingu

Bolholt 7-9

Reykjavík

Sala er hafin á glæsilegu fjölbýlishúsi við Bolholt 7-9 í Reykjavík. Húsið er staðsett á Vallhallarreitnum á mjög góðum stað miðsvæðis í Reykjavík. Það verða 47 íbúðir í húsinu auk verslunarrýmis. Flestum íbúðum fylgja stæði í bílageymslu en einnig eru sameiginleg bílastæði á lóð. Íbúðirnar verða með vönduðum innréttingum frá Axis og eldhústækjum frá Ormsson. Íbúðirnar eru ýmist með góðum svölum eða stórum timburveröndum. Bolholt 7-9 er sex hæða fjölbýlishús með lyftum og bílageymslu. Bílageymsla er upphituð og sérgeymslur eru í kjallara. Í húsinu er 2ja til 4ra herbergja íbúðir. Íbúðirnar verða afhentar með vönduðum innréttingum frá Axis og án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og þvottahúsum frá. Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin og verður mynddyrasími með einu símtóli í íbúð. Sameign verður frágengin utan sem innan og í sameign verður vönduð lyfta. Anddyri verður flísalagt en stigar og stigapallar teppalagðir. Gangstéttar við húsið verða með snjóbræðslukerfi skv teikningum. Á baðherbergjum eru gólf flísalögð og veggir flísalagðir upp í loft. Þau verða búin vönduðum hreinlætistækjum, hitastýrðum blöndunartækjum, upphengdum salernum, sturtum með glerhlið. Innréttingar og innihurðir eru vandaðar, sjá nánar í skilalýsingu. Bolholt 7-9 er staðsett á hinum nýja Valhallarreit á horni Háleitisbrautar og Skipholts. Staðsetning er ákaflega góð rétt miðsvæðis í Reykjavík.

Skoða verkefni
Eskiás
Í byggingu

Eskiás

Garðabær
2026

Eskiás 1-10 er ný gata á grónum stað í Ásahverfinu í Garðabænum skammt frá skólum, leikskólum, íþróttasvæði og verslunarkjarna í miðbæ Garðabæjar. Eskiás liggur fyrir ofan Sjálandshverfið og nýtur því útsýnis í átt til sjávar og yfir til borgarinnar. Staðsetningin er örstutt frá megin ökuleiðum og einnig er gert ráð fyrir einni af meginstöðvum borgarlínunar til framtíðar. Við Eskiás 1-10 verða byggð níu hús með mismunandi fjölda íbúða í hverju húsi. Séreinkenni íbúðanna í Eskiási er að allar íbúðir verða með sérinngangi. Húsin mynda ferning utanum skjólgóðan inngarð og eru allar íbúðir með aðgengi eða glugga í átt að inngarðinum. Hæð húsana eru 2-3 hæðir. Íbúðastærðir eru fjölbreyttar eða frá 70 fm til 135 fm íbúðir sem eru 2 til 5 herbergja. Geymslur eru allar innan íbúða sem eykur notkunargildi þeirra og minnkar þá sameign sem venjulega þarf að greiða fyrir í fjölbýli. Eina sameign húsins er miðlæg hjóla og vagnageymsla auk tæknirýmis. Inngangar inn í inngarðin er frá báðum langhliðum húsins.

Skoða verkefni
Heklureitur
Í byggingu

Heklureitur

Reykjavík

Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag. Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu. Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Fjöldi einkastæða fylgja íbúðum – engin leigustæði Undir húsunum er tvöfaldur bílakjallari með fjölda einkabílastæða. Er kjallarinn búinn rafstýrðri hurð með bílnúmerastýringu, öryggismyndavélum og hreyfiskynjurum. Aðgangsstýring tryggir að aðeins viðurkenndir notendur komist að. Gengið verður frá dreifingu fyrir rafhleðslustöðvar við öll bílastæði og því hægt með fljótum hætti að setja upp rafhleðslustöðvar við öll einkastæði. Fallegar íbúðir af fjölbreyttum stærðum með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum. Bókið einkaskoðun hjá fasteignasölum okkar.

Skoða verkefni
Hjallabraut 45-49
Í byggingu

Hjallabraut 45-49

Hafnarfjörður

Við Hjallabraut í Hafnarfirði rísa glæsileg rað- og einbýlishús í nágrenni við náttúruna. Stutt er í skóla, leikskóla og helstu þjónustu. Húsin verða afhent með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og eldhústækjum frá Ormsson og gólfhita skv. teikningum. Í húsunum verður loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu. Stéttar við húsin verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í bílastæði og gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Húsin eru með verönd með timburkæddum palli í bakgarði. Á baðherbergjum eru gólf flísalögð og veggir flísalagðir upp í loft. Þau verða búin vönduðum hreinlætistækjum, upphengdum salernum, hitastýrðum blöndunartækjum og sturtum.

Skoða verkefni
Naustavör 60-66
Í byggingu

Naustavör 60-66

Kópavogur

Sala er hafin á íbúðum í glæsilegu 54 íbúða fjölbýlishúsi við Naustavör 60-66 í Bryggjuhverfinu í vesturbæ Kópavogs. Íbúðirnar eru frá 80.3 til 199.2 fm. Íbúðirnar verða með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og eldhústækjum frá Ormsson. Íbúðirnar eru ýmist með góðum svölum eða stórum timburveröndum. Stæði í bílageymslu fylgja íbúðum. Naustavör 60-66 er 4ra hæða fjölbýlishús með lyftu við Naustavör í Kópavogi staðsett örstutt frá smábátahöfninni, með glæsilegu sjávarútsýni úr flestum íbúðunum. Í húsinu eru 2ja til 4ra herbergja íbúðir. Íbúðirnar hafa annaðhvort svalir eða verönd. Tvennar svalir fylgja sumum íbúðum. Bílageymsla er upphituð, sérgeymslur eru í kjallara. Íbúðirnar verða afhentar með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og þvottahúsum frá Parka. Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin og verður mynddyrasími með einu símtóli í íbúð. Sameign verður frágengin utan sem innan og í sameign verður vönduð lyfta. Anddyri verður flísalagt en stigar og stigapallar teppalagðir. Gangstéttar við húsið verða með snjóbræðslukerfi skv teikningum. Á baðherbergjum eru gólf flísalögð og veggir flísalagðir upp í loft. Þau verða búin vönduðum hreinlætistækjum, hitastýrðum blöndunartækjum, upphengdum salernum, sturtum með glerhlið. Innréttingar og innihurðir eru vandaðar, sjá nánar í skilalýsingu. Bryggjuhverfið á Kársnesi í Kópavogi er staðsett á fallegum stað á móti Nauthólsvíkinni, fjölskylduvænu og fallegu umhverfi við sjávarsíðuna. Siglingafélagið Ýmir er með aðstöðu við smábátahöfnina og er það iðandi af lífi. Í bryggjuhverfinu á Kársnesinu er gert ráð fyrir verði um 400 íbúðir. Flutt var í fyrstu íbúðir hverfisins á vormánuðum 2015. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.

Skoða verkefni
Vetrarbraut 2-4
Í byggingu

Vetrarbraut 2-4

Garðabær

Einstök staðsetning fyrir útivistarfólk og næg bílastæði Vetrarmýrin er í mikilli uppbyggingu og er Vetrarbrautin hluti af nýju hverfi við jaðar friðlandsins í Heiðmörk. Húsin eru í randbyggðarformi með fallegum inngarði. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotareiti en íbúðir á efri hæðum eru með svalir. Einstök staðsetning við golfvöll GKG við Vífilstaði þar sem hægt er að bruna á golfbílnum beint úr frístundaskúrnum út á völl. Fallegar eignir þar sem áhersla er lögð á loftgæði og hefur hver íbúð sitt eigið loftskiptakerfi. Við hönnun innanhúss var horft til þess að halda innréttingum þannig að þær séu klassískar og tímalausar en jafnframt nútímalegar. Vandað var við val á eldhús- og blöndunartækjum. Næg bílastæði eru í bílakjallara og hverri íbúð fylgja 1 til 3 einkastæði. Þá fylgir hluta íbúðanna frístundaskúr eða bílskúr í bílakjallara. Hverfið Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar, auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir og almenningssamgöngur. Í skipulagi hverfisins er gert ráð fyrir fjölbreyttu göngu- og hjólastígakerfi með góðum tengingum við nálæg útivistarsvæði, ásamt jarðbrú yfir Reykjanesbraut sem styrkir mjög tengingu yfir í miðbæ Garðabæjar. Ein af meginhugmyndum deiliskipulagsins er grænn breiður stígur, svokallaður Vífilsstaðaás, trjágöng sem liggja frá Vífilsstaðaspítala og upp á Hnoðraholtið. Náttúran Byggingarland Vetrarmýrar er einstakt þegar litið er til nálægðar við náttúru. Þaðan er örstutt í Heiðmörk, eitt stærsta og vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, en hún er að einum þriðja hluta í landi Garðabæjar. Gengt húsunum blasa við sögufrægar byggingar Vífilsstaða á Vífilsstaðahæðinni og skammt undan eru Vífilsstaðavatn og Vífilsstaðahraun. Útivistarmöguleikar eru óteljandi í nágrenninu og auk þess að vera með golfvöll í bakgarðinum er Golfklúbburinn Oddur stutt frá og hægt að renna í gegnum Heiðmörkina upp að Helgafelli sem er eitt vinsælasta fjall til uppgöngu á höfuðborgarsvæðinu. Svansvottuð gæði – fyrir fólk, framtíð og umhverfi Í Svansvottuðum íbúðum sameinast hágæði, heilsusamlegt inniloft og ábyrg umhverfisstefna. Slíkar íbúðir eru hannaðar með framtíðina í huga – með áherslu á lágmörkun umhverfisáhrifa og betri innivist. Betra loft – betra líf Íbúðirnar uppfylla strangar kröfur um loftræstingu, dagsbirtu og val á efnum. Eiturefni og skaðleg byggingarefni eru útilokuð og þannig dregið úr hættu á heilsufarsvandamálum, hormónaröskunum eða raka og myglu. Meiri birta – meiri vellíðan Rými eru hönnuð með áherslu á náttúrulega birtu, sem hefur jákvæð áhrif á líðan og andlega heilsu. Orkusparandi hönnun – lægri rekstrarkostnaður Allt frá heimilistækjum til einangrunar og loftræsingar er valið með sparnað og orkunýtingu í huga. Þetta skilar sér í lægri kostnaði og umhverfisvænni rekstri. Strangar gæðakröfur eru gerðar í öllu byggingarferlinu.

Skoða verkefni
Vorbraut 1
Í byggingu

Vorbraut 1

Garðabær

Vorbraut 1 í Hnoðraholti Garðabæjar Um er að ræða glæsilegt sjö íbúða lyftufjölbýli þar sem öllum íbúðum er skilað með sérsmíðuðum innréttingum og vönduðum tækjum ásamt því að allt ytra birgði húsins er gert eins viðhaldslétt og kostur er. Allar íbúðir eru 3ja herbergja, þ.e. með 2 svefnherbergjum. Öllum íbúðum fylgir stæði í opinu bílaskýli en auk þess fylgir tveimur íbúðum bílskúr sem innbyggður er í húsið. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með sérsmíðuðum loftháum innréttingum og skápum í viðarliti frá Arens. Íbúðir afhendast án gólfefna en á baðherbergjum og í þvottahúsum verða flísar. Gólfsíðir gluggar eru í öllum íbúðum og þar sem húsið stendur ofarlega á holtinu þá er glæsilegt útsýni úr þeim flestum. Upphitun íbúða er með gólfhita og ráð gert fyrir snóbræðslulögn við húsið. Íbúðir á 1. og 2. hæð við SV-horn eru afhentar með svalalokun. Hnoðraholt er spennandi og vaxandi hverfi á góðum stað innan höfuðborgarsvæðisins nálægt helstu stofnbrautum. Stutt í náttúruna, Vífilstaði, Heiðmörk og góða golfvelli, íþróttahúsið Miðgarð, Smáralind og skóla. Arkitektar og aðalhönnuðir: Sen&Son arkitektar ehf.  Verkfræðihönnun: NNE ehf.  Hljóðráðgjöf: Myrra hönnunarstofa ehf.  Brunahönnun: Brunahönnun slf.  Byggingaraðili: Hús og Jörð ehf.

Skoða verkefni
Vorbraut 41-51
Í byggingu

Vorbraut 41-51

Garðabær

Húsunum er skilað frágengnum að utan og tilbúnum til innréttinga að innan. Lóðum er skilað frágengnum að framanverðu en grófjöfnuðum að öðru leyti. Hægt er að fá húsið lengra komið í samstarfi við byggingaraðila með möguleika á vali milli tveggja mjög veglegra innréttingarpakka frá Birgisson. Endilega hafið samband við fasteignasala fyrir frekari upplýsingar. Arkitektur Raðhúsin við Vorbraut 41-51 voru hönnuð af FORMER arkitektum. Húsin voru sérstaklega hönnuð með sólarátt og birtuskilyrði í huga og skipulagið unnið út frá einstakri staðsetningu í suðurhlíð Hnoðraholts svo að íbúar allra húsanna geti notið stórbrotins útsýnis yfir golfvöll og náttúruparadísina Heiðmörk. Einkar glæsilegir innigarðar gefa húsunum sérstakan karakter með sterka tengingu við náttúruna og ásamt efnisvali er sem hún flæði inn í húsin. Innanhússhönnun Innanhússhönnun var í höndum M/STUDIO Reykjavík. Lagt var upp með tímalausa hönnun og samspil við náttúru þar sem úthugsað innanhússskipulag, skýrar línur og gott flæði er einkennandi . Þá var áhersla lögð á hágæða efni þar sem ekkert var til sparað til þess að hafa húsin sem glæsilegust. Hverfið Hnoðraholt í Garðabæ er einstaklega vel staðsett hverfi með víðáttumiklu útsýni í allar áttir og stórbrotinni náttúrufegurð. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og fjölbreytta íþróttaiðkun, til dæmis í íþróttahúsinu Miðgarði. Þá er einstakt aðgengi að útivistarsvæðum Garðabæjar, svo sem Heiðmörk, Vífilsstaðavatni og golfvöllum GKG, sem öll eru í göngufæri. Byggingaraðili Vangur er fasteignaþróunarfélag með það að markmiði að þróa og byggja vandaðar og vel hannaðar byggingar þar sem gæði, notagildi og fagurfræði fara saman. Gráhyrna er aðalverktaki Vorbrautar 41-51 en félagið er traust verktakafyrirtæki sem hefur verið starfandi á byggingarmarkaði í yfir 10 ár við góðan orðstír.

Skoða verkefni