
Glæsilegar svansvottaðar íbúðir í Hafnarfirði tilbúnar til afhendingar.
Til sölu glæsilegar íbúðir við Baughamar 1 í Hafnarfirði.
Í húsinu er 33 íbúðir, allt frá tveggja til fjögurra herbergja íbúðir. Þær afhendast fullbúnar án gólfefna. Lögð er áhersla á vandaðar íbúðir með góða hljóðvist og góðum loftgæðum. Eldhúsinnréttingar eru frá þýska framleiðandanum Nobilia, umboðsaðili er GKS. Eldhús er fullbúið tækjum eins og helluborði, viftu, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþottavél og ofni. Mikil áhersla er lögð á vandaðan frágang utanhúss. Merkt bílastæði fylgir íbúð á lóð eða í lokuðu bílastæðahúsi.
Baughamar er Svansvottað og hönnun tekur mið af gæðum og endingu.
Baughamar er staðsettur í dalverpi umlukið Skarðshlíð til norðurs, Vatnshlíð til austurs og Hamranesi til suðurs.
Einn helsti styrkur hverfisins er nálægð þess við náttúrulega umgjörð, fagurt landslag sem einkennist af aflíðandi gróinni hlíð (Skarðshlíð) til suðurs og austur, hraunbreiðum í svæðinu miðju og svipsterkum klettavegg í suðvesturs.