Vetrarbraut 2-4

Vetrarbraut 2-4

Glæsilegar íbúðir í nálægð við náttúruperlur.

Garðabær
Í byggingu

Um verkefnið

Einstök staðsetning fyrir útivistarfólk og næg bílastæði

Vetrarmýrin er í mikilli uppbyggingu og er Vetrarbrautin hluti af nýju hverfi við jaðar friðlandsins í Heiðmörk.

Húsin eru í randbyggðarformi með fallegum inngarði. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotareiti en íbúðir á efri hæðum eru með svalir. Einstök staðsetning við golfvöll GKG við Vífilstaði þar sem hægt er að bruna á golfbílnum beint úr frístundaskúrnum út á völl.

Fallegar eignir þar sem áhersla er lögð á loftgæði og hefur hver íbúð sitt eigið loftskiptakerfi.

Við hönnun innanhúss var horft til þess að halda innréttingum þannig að þær séu klassískar og tímalausar en jafnframt nútímalegar. Vandað var við val á eldhús- og blöndunartækjum.

Næg bílastæði eru í bílakjallara og hverri íbúð fylgja 1 til 3 einkastæði. Þá fylgir hluta íbúðanna frístundaskúr eða bílskúr í bílakjallara.

Hverfið

Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar, auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir og almenningssamgöngur.

Í skipulagi hverfisins er gert ráð fyrir fjölbreyttu göngu- og hjólastígakerfi með góðum tengingum við nálæg útivistarsvæði, ásamt jarðbrú yfir Reykjanesbraut sem styrkir mjög tengingu yfir í miðbæ Garðabæjar. Ein af meginhugmyndum deiliskipulagsins er grænn breiður stígur, svokallaður Vífilsstaðaás, trjágöng sem liggja frá Vífilsstaðaspítala og upp á Hnoðraholtið.

Náttúran

Byggingarland Vetrarmýrar er einstakt þegar litið er til nálægðar við náttúru. Þaðan er örstutt í Heiðmörk, eitt stærsta og vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, en hún er að einum þriðja hluta í landi Garðabæjar. Gengt húsunum blasa við sögufrægar byggingar Vífilsstaða á Vífilsstaðahæðinni og skammt undan eru Vífilsstaðavatn og Vífilsstaðahraun.

Útivistarmöguleikar eru óteljandi í nágrenninu og auk þess að vera með golfvöll í bakgarðinum er Golfklúbburinn Oddur stutt frá og hægt að renna í gegnum Heiðmörkina upp að Helgafelli sem er eitt vinsælasta fjall til uppgöngu á höfuðborgarsvæðinu.

Svansvottuð gæði – fyrir fólk, framtíð og umhverfi

Í Svansvottuðum íbúðum sameinast hágæði, heilsusamlegt inniloft og ábyrg umhverfisstefna. Slíkar íbúðir eru hannaðar með framtíðina í huga – með áherslu á lágmörkun umhverfisáhrifa og betri innivist.

Betra loft – betra líf

Íbúðirnar uppfylla strangar kröfur um loftræstingu, dagsbirtu og val á efnum. Eiturefni og skaðleg byggingarefni eru útilokuð og þannig dregið úr hættu á heilsufarsvandamálum, hormónaröskunum eða raka og myglu.

Meiri birta – meiri vellíðan

Rými eru hönnuð með áherslu á náttúrulega birtu, sem hefur jákvæð áhrif á líðan og andlega heilsu.

Orkusparandi hönnun – lægri rekstrarkostnaður

Allt frá heimilistækjum til einangrunar og loftræsingar er valið með sparnað og orkunýtingu í huga. Þetta skilar sér í lægri kostnaði og umhverfisvænni rekstri.

Strangar gæðakröfur eru gerðar í öllu byggingarferlinu.

Hafðu samband

Myndir

Vetrarbraut 2-4 - Mynd 1
Vetrarbraut 2-4 - Mynd 2
Vetrarbraut 2-4 - Mynd 3
Vetrarbraut 2-4 - Mynd 4
Vetrarbraut 2-4 - Mynd 5

Eignir

1/13

Vetrarbraut 2 íb112, Garðabær

114.900.000 kr.

125 m²

1/62

Vetrarbraut 2 íb304, Garðabær

149.900.000 kr.

172 m²

1/26

Vetrarbraut 2 íb401, Garðabær

196.900.000 kr.

173 m²

1/16

Vetrarbraut 2 íb309, Garðabær

119.900.000 kr.

119 m²

1/13

Vetrarbraut 2 íb201, Garðabær

102.900.000 kr.

110 m²

1/12

Vetrarbraut 2 íb107, Garðabær

93.900.000 kr.

99 m²

1/19

Vetrarbraut 2 íb303, Garðabær

79.900.000 kr.

72 m²

1/11

Vetrarbraut 2 íb206, Garðabær

77.900.000 kr.

73 m²

1/32

Vetrarbraut 4 íb412, Garðabær

224.900.000 kr.

203 m²

1/33

Vetrarbraut 2 íb408, Garðabær

0 kr.

193 m²

1/19

vetrarbraut 2 íb307, Garðabær

106.900.000 kr.

99 m²

1/15

Vetrarbraut 2 íb209, Garðabær

119.900.000 kr.

127 m²

1/18

Vetrarbraut 2 íb205, Garðabær

77.900.000 kr.

77 m²

1/30

Vetrarbraut 4 íb411, Garðabær

0 kr.

204 m²

1/28

Vetrarbraut 4 íb410, Garðabær

0 kr.

193 m²

1/29

Vetrarbraut 4 íb409, Garðabær

0 kr.

235 m²

1/29

Vetrarbraut 2 íb407, Garðabær

0 kr.

98 m²

1/45

Vetrarbraut 4 íb320, Garðabær

122.900.000 kr.

129 m²

1/15

Vetrarbraut 2 íb110, Garðabær

74.670.000 kr.

78 m²

1/29

Vetrarbraut 2 íb406, Garðabær

0 kr.

128 m²

1/30

Vetrarbraut 2 íb404, Garðabær

0 kr.

89 m²

1/18

Vetrarbraut 4 íb317, Garðabær

112.900.000 kr.

110 m²

1/16

Vetrarbraut 4 íb314, Garðabær

82.900.000 kr.

79 m²

1/24

Vetrarbraut 2 íb405, Garðabær

0 kr.

166 m²

1/27

Vetrarbraut 2 íb204, Garðabær

134.900.000 kr.

144 m²

1/21

Vetrarbraut 2 íb312, Garðabær

117.900.000 kr.

124 m²

1/21

Vetrarbraut 4 íb313, Garðabær

117.900.000 kr.

126 m²

1/13

Vetrarbraut 2 íb104, Garðabær

129.900.000 kr.

144 m²

1/17

Vetrarbraut 2 íb101, Garðabær

93.900.000 kr.

101 m²

1/2

Vetrarbraut 3, Þorlákshöfn

73.900.000 kr.

254 m²

1/22

Vetrarbraut 2 íb212, Garðabær

114.900.000 kr.

119 m²

1/13

Vetrarbraut 2 íb310, Garðabær

99.900.000 kr.

99 m²

1/18

Vetrarbraut 2 íb210, Garðabær

92.900.000 kr.

94 m²

1/20

Vetrarbraut 4 íb220, Garðabær

112.900.000 kr.

113 m²

1/16

Vetrarbraut 4 íb213, Garðabær

112.900.000 kr.

124 m²

1/17

Vetrarbraut 4 íb120, Garðabær

109.900.000 kr.

121 m²

1/18

Vetrarbraut 2 íb109, Garðabær

97.900.000 kr.

104 m²

1/24

Vetrarbraut 2 íb403, Garðabær

0 kr.

210 m²

1/14

Vetrarbraut 2 íb301, Garðabær

116.900.000 kr.

118 m²