TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Vetrarbraut 2 íb404
    Stækka
    Vetrarbraut 2 íb404 - mynd 2
    Vetrarbraut 2 íb404 - mynd 3
    Vetrarbraut 2 íb404 - mynd 4
    Vetrarbraut 2 íb404 - mynd 5
    210 Garðabær

    Vetrarbraut 2 íb404

    0 kr.
    Stærð89 m²
    Herbergi2

    Um eignina

    Bókið skoðun hjá Margréti Rós, lgf í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is 
    Fasteignasalan TORG kynnir: Loft-gæði / Hljóð-gæði / Birtu-gæði! Húsið í Svansvottunarferli!  Um er að ræða góð 2ja herbergja íbúð á efstu hæð með tvennar svalir inn í sameiginlegan garð og til vesturs. Íbúð merkt:0404, og skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 89,5fm að stærð á 4. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 75,1fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á svalir, 1 svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottaherbergi og geymslu í sameign merkt: 0019, skráð 14,4fm. ásamt einu bílstæði í bílakjallara. Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Margrét Rós, fasteignasali í GSM: 856-5858 eða margret@fstorg.is 


    Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
    Sækja söluyfirlit HÉR

    Almennar upplýsingar 
    Vetrarbraut 2 - 4 er nýtt fjölbýlishús í nýju og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði, Garðabæ. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, í svansvottunarferli, með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.
    Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum.  Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli. Sjá nánar skilalýsingu*

    Utanhússfrágangur
    Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.
    Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.
    Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.
    Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.

    Innanhússfrágangur  4 hæð:
    Sérsmíðaðar Voke III spónlagðar eikar innréttingar með innfelldum gripum,
    Kvarts steinn á borðplötum. Vönduð tæki eru í eldhúsi; innbyggður Siemens ísskápur, uppþvottavél. Gaggenau ofn og sambyggður ofn/örbylgjuofn (Combi ofn) í vinnuhæð, helluborð með innbyggðri viftu. Eldhús- og blöndunartæki að vandaðri gerð. Íbúðin skilast án gólfefna utan baðherbergja og þvottahús sem skilast flísalögð.
    Almennt um 4 hæð: Rými eru hönnuð með áherslu á loftgæði, hljóðvist og náttúrulega birtu. Hver íbúð hefur loftskiptikerfi sem stjórnað er innan íbúðar, slíkt eykur loftgæði og stuðlar að heilnæmu innilofti. Húsið er klætt flísum og álkæðningu, slétt og bára. klæðningar eru í mismunandi litum, náttúrulegum jarðlitum sem tengir bygginguna umhverfinu, lögð er áhersla á að húsin séu viðhaldslétt, flísar og álklæðningar og ál/tré gluggar.

    Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.
    Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.

    Tæki og búnaður
    Eldhústæki frá Gaggenau: Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.
    Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.

    Sameignir:
    Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.
    Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.
    Hjólageymsla: Í hvoru húsi.
    Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.

    Hönnun og framkvæmdir
    Arkitektar: Arkís arkitektar.
    Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.
    Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.
    Sjá nánar skilalýsingu*
     

    Verð
    0 kr.
    Sölumaður

    Margrét Rós Einarsdóttir

    8565858margret@fstorg.is
    Stærð89 m²
    Herbergi2
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað