TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Vetrarbraut 2 íb204
    Stækka
    Vetrarbraut 2 íb204 - mynd 2
    Vetrarbraut 2 íb204 - mynd 3
    Vetrarbraut 2 íb204 - mynd 4
    Vetrarbraut 2 íb204 - mynd 5
    210 Garðabær

    Vetrarbraut 2 íb204

    134.900.000 kr.
    Stærð144 m²
    Herbergi4

    Um eignina

    Fasteignasalan TORG kynnir: Góð 4ra herbergja íbúð með tvennar svalir, frístundaskúr og góðu bílastæði í bílakjallara! Íbúð merkt:0204 skilast fullbúin án gólfefna og er alls 144,2fm að stærð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðar rýmið skráð 132,3fm og skiptist í anddyri, gestasalerni, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á svalir. Þrjú svefnherbergi, svalir út af hjónaherbergi, baðherbergi, sér þvottaherbergi og frístundarskúr í sameign merkt: 0065, skráð 11,9fm., ásamt góðu bílstæði í bílakjallara merkt: B18. Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Guðný Ösp, fasteignasali í GSM: 665-8909 eða gudny@fstorg.is

    Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
    Sækja söluyfirlit HÉR

    Almennar upplýsingar 
    Vetrarbraut 2 - 4 er nýtt fjölbýlishús í nýju og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði, Garðabæ. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, í svansvottunarferli, með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.
    Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum.  Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli. Sjá nánar skilalýsingu*

    Utanhússfrágangur
    Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.
    Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.
    Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.
    Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.

    Innanhússfrágangur 
    Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna.
    Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum.
    Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir.
    Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka.
    Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng. Flísar: 60x60 
    Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum.
    Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.
    Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.

    Tæki og búnaður
    Eldhústæki (flest frá Siemens):
    Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.
    Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.

    Sameignir:
    Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.
    Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.
    Hjólageymsla: Í hvoru húsi.
    Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.

    Hönnun og framkvæmdir
    Arkitektar: Arkís arkitektar.
    Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.
    Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.
    Sjá nánar skilalýsingu*
     

    Verð
    134.900.000 kr.
    Sölumaður

    Guðný Ösp Ragnarsdóttir

    6658909gudny@fstorg.is
    Stærð144 m²
    Herbergi4
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað