Bolholt 7-9

Bolholt 7-9

Glæsilegt fjölbýlishús með lyftu staðsett á Valhallarreitnum á mjög góðum stað miðsvæðis í Reykjavík.

Reykjavík
Í byggingu

Um verkefnið

Sala er hafin á glæsilegu fjölbýlishúsi við Bolholt 7-9 í Reykjavík. Húsið er staðsett á Vallhallarreitnum á mjög góðum stað miðsvæðis í Reykjavík.

Það verða 47 íbúðir í húsinu auk verslunarrýmis.

Flestum íbúðum fylgja stæði í bílageymslu en einnig eru sameiginleg bílastæði á lóð.

Íbúðirnar verða með vönduðum innréttingum frá Axis og eldhústækjum frá Ormsson. Íbúðirnar eru ýmist með góðum svölum eða stórum timburveröndum.

Bolholt 7-9 er sex hæða fjölbýlishús með lyftum og bílageymslu. Bílageymsla er upphituð og sérgeymslur eru í kjallara. Í húsinu er 2ja til 4ra herbergja íbúðir.

Íbúðirnar verða afhentar með vönduðum innréttingum frá Axis og án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og þvottahúsum frá. Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin og verður mynddyrasími með einu símtóli í íbúð.

Sameign verður frágengin utan sem innan og í sameign verður vönduð lyfta. Anddyri verður flísalagt en stigar og stigapallar teppalagðir. Gangstéttar við húsið verða með snjóbræðslukerfi skv teikningum.

Á baðherbergjum eru gólf flísalögð og veggir flísalagðir upp í loft. Þau verða búin vönduðum hreinlætistækjum, hitastýrðum blöndunartækjum, upphengdum salernum, sturtum með glerhlið. Innréttingar og innihurðir eru vandaðar, sjá nánar í skilalýsingu.

Bolholt 7-9 er staðsett á hinum nýja Valhallarreit á horni Háleitisbrautar og Skipholts. Staðsetning er ákaflega góð rétt miðsvæðis í Reykjavík.

Hafðu samband

Myndir

Bolholt 7-9 - Mynd 1
Bolholt 7-9 - Mynd 2
Bolholt 7-9 - Mynd 3
Bolholt 7-9 - Mynd 4

Eignir