
Glæsilegt sjö íbúða lyftufjölbýli þar sem öllum íbúðum er skilað með sérsmíðuðum innréttingum og vönduðum tækjum ásamt því að allt ytra birgði húsins er gert eins viðhaldslétt og kostur er.
Vorbraut 1 í Hnoðraholti Garðabæjar
Um er að ræða glæsilegt sjö íbúða lyftufjölbýli þar sem öllum íbúðum er skilað með sérsmíðuðum innréttingum og vönduðum tækjum ásamt því að allt ytra birgði húsins er gert eins viðhaldslétt og kostur er.
Allar íbúðir eru 3ja herbergja, þ.e. með 2 svefnherbergjum. Öllum íbúðum fylgir stæði í opinu bílaskýli en auk þess fylgir tveimur íbúðum bílskúr sem innbyggður er í húsið.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með sérsmíðuðum loftháum innréttingum og skápum í viðarliti frá Arens. Íbúðir afhendast án gólfefna en á baðherbergjum og í þvottahúsum verða flísar.
Gólfsíðir gluggar eru í öllum íbúðum og þar sem húsið stendur ofarlega á holtinu þá er glæsilegt útsýni úr þeim flestum. Upphitun íbúða er með gólfhita og ráð gert fyrir snóbræðslulögn við húsið. Íbúðir á 1. og 2. hæð við SV-horn eru afhentar með svalalokun.
Hnoðraholt er spennandi og vaxandi hverfi á góðum stað innan höfuðborgarsvæðisins nálægt helstu stofnbrautum. Stutt í náttúruna, Vífilstaði, Heiðmörk og góða golfvelli, íþróttahúsið Miðgarð, Smáralind og skóla.
Arkitektar og aðalhönnuðir: Sen&Son arkitektar ehf.
Verkfræðihönnun: NNE ehf.
Hljóðráðgjöf: Myrra hönnunarstofa ehf.
Brunahönnun: Brunahönnun slf.
Byggingaraðili: Hús og Jörð ehf.