Eskiás

Eskiás

Eskiás 1-10 er ný gata á grónum stað í Ásahverfinu í Garðabænum

Garðabær
2026
Í byggingu

Um verkefnið

Eskiás 1-10 er ný gata á grónum stað í Ásahverfinu í Garðabænum skammt frá skólum, leikskólum, íþróttasvæði og verslunarkjarna í miðbæ Garðabæjar.

Eskiás liggur fyrir ofan Sjálandshverfið og nýtur því útsýnis í átt til sjávar og yfir til borgarinnar. Staðsetningin er örstutt frá megin ökuleiðum og einnig er gert ráð fyrir einni af meginstöðvum borgarlínunar til framtíðar. Við Eskiás 1-10 verða byggð níu hús með mismunandi fjölda íbúða í hverju húsi. Séreinkenni íbúðanna í Eskiási er að allar íbúðir verða með sérinngangi. Húsin mynda ferning utanum skjólgóðan inngarð og eru allar íbúðir með aðgengi eða glugga í átt að inngarðinum.

Hæð húsana eru 2-3 hæðir. Íbúðastærðir eru fjölbreyttar eða frá 70 fm til 135 fm íbúðir sem eru 2 til 5 herbergja. Geymslur eru allar innan íbúða sem eykur notkunargildi þeirra og minnkar þá sameign sem venjulega þarf að greiða fyrir í fjölbýli. Eina sameign húsins er miðlæg hjóla og vagnageymsla auk tæknirýmis. Inngangar inn í inngarðin er frá báðum langhliðum húsins.

Hafðu samband

Myndir

Eskiás - Mynd 1
Eskiás - Mynd 2

Eignir