TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Eskiás 1
    Stækka
    Eskiás 1 - mynd 2
    Eskiás 1 - mynd 3
    Eskiás 1 - mynd 4
    Eskiás 1 - mynd 5
    210 Garðabær

    Eskiás 1

    104.900.000 kr.
    Stærð117 m²
    Herbergi5

    Um eignina


    Ragnar lgf. S: 844-6516 hjá TORG fasteignasölu kynnir: Gullfallega nýlega 5 herbergja íbúð með sérinngangi merkt 204 á 2. hæð að Eskiás 1A í Ásahverfi Garðabæjar. 
    Um er að ræða eign sem er skráð 117,9 fm. og skiptist í forstofu/anddyri, rúmgott alrými
    sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar.
    Frá alrými er útgengt á svalir. Allar innréttingar í eldhúsi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar koma frá Trésmiðju GKS.
    Göngufæri er í skóla, verslanir, veitingahús, sundlaug og alla helstu þjónustu. Einnig er stutt í góða og vel skipulagða göngu- og hjólastíg við sjávarsíðuna og Gálgahrauninu. 
    Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 / ragnar@fstorg.is

    Nánari lýsing:
    Forstofa/anddyri: Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og háum hvítum fjórföldum fataskáp.
    Hjónaherbergi: Mjög rúmgott hjónaherbergi búið vönduðum sérsmíðuðum hvítum háum fataskápum. Harðparket á gólfi.
    Svefnherbergi: Að auki hjónaherbergis eru þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfum. Búin hvítum háum fataskápum. Skúffur í fataskápum eru vandaðar með ljúflokun. 
    Alrými: Rúmgott alrými sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu. Frá alrými er útgengt á svalir. Harðparket á gólfi.
    Eldhús: Falleg ljósgrá innrétting með steingrárri borðplötu. Búin efri- og neðri skápum með ljúflokun, blástursofni, spanhelluborði, innbyggðum ísskáp og tengi fyrir uppþvottavél. Harðparket á gólfi.
    Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með innbyggðri lýsingu í lofti, hvítri innréttingu með ljúflokun á neðri skúffum, heilsteyptri handlaug í borðplötu,
    LED lýstum spegli á vegg, upphengdu salerni, handklæðaofni (Stormberg Laveno), sturtu með hertu gleri og þvottaaðstöðu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hvíttað glerskilrúm stúkar af þvottavél og þurrkara. Öll hreinlætistæki eru frá Grohe. 
    Geymsla: Sérgeymsla er innan íbúðar. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Seljandinn hefur komið fyrir einum af sérsmíðuðum fataskápum svefnherbergjanna inn í geymslu.
    Rafbílahleðsla á sameiginlegum bílastæðum.

    Nýleg og skemmtileg eign þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, miðbæ Garðabæjar og alla helstu þjónustu ásamt því að vera í göngufæri við Ásgarðslaug (sundlaug Garðabæjar), og aðrar fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni og Gálgahrauninu ásamt því að stutt er í almenningssamgöngur. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 ragnar@fstorg.is

    Áætluð gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign (Getur breyst):
    1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
    2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
    3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
    4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

    Skoðunarskylda kaupanda:
    Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
    Forsendur söluyfirlits:
    Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
    í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
    Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
    Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
    Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
    og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

    Verð
    104.900.000 kr.
    Sölumaður

    Ragnar Kristján Guðmundsson

    8446516ragnar@fstorg.is
    Stærð117 m²
    Herbergi5
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað