
Fallegar íbúðir af fjölbreyttum stærðum með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum.
Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.
Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu.
Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir.
Fjöldi einkastæða fylgja íbúðum – engin leigustæði
Undir húsunum er tvöfaldur bílakjallari með fjölda einkabílastæða. Er kjallarinn búinn rafstýrðri hurð með bílnúmerastýringu, öryggismyndavélum og hreyfiskynjurum. Aðgangsstýring tryggir að aðeins viðurkenndir notendur komist að.
Gengið verður frá dreifingu fyrir rafhleðslustöðvar við öll bílastæði og því hægt með fljótum hætti að setja upp rafhleðslustöðvar við öll einkastæði.
Fallegar íbúðir af fjölbreyttum stærðum með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum. Bókið einkaskoðun hjá fasteignasölum okkar.

Löggiltur fasteignasali

Löggiltur fasteignasali

Löggiltur fasteignasali

Löggiltur fasteignasali

Framkvæmdastjóri, fasteignasali og eigandi. Viðskiptafræðingur