TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Laugavegur 168 íb303 heklureitur
    Stækka
    Laugavegur 168 íb303 heklureitur - mynd 2
    Laugavegur 168 íb303 heklureitur - mynd 3
    Laugavegur 168 íb303 heklureitur - mynd 4
    Laugavegur 168 íb303 heklureitur - mynd 5
    105 Reykjavík (Austurbær)

    Laugavegur 168 íb303 heklureitur

    124.900.000 kr.
    Stærð113 m²
    Herbergi4

    Um eignina

    Fasteignasalan TORG Kynnir: Glæsileg 4 herbergja íbúð með lokanlegum hornsvölum til vesturs og bílastæði í bílakjallara. Íbúð merkt:303, sem skilast fullbúin án gólfefna. Alls er eignin 113 fm að stærð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 104,5 fm og skiptist í anddyri, baðherbergi með  þvotta aðstöðu, alrými með eldhúsi m/eyju, borðstofu, sjónvarpshol(herbergi), hjónasvíta með fataherbergi, barnasvefnherbergi og stofu með útgengi út á hornsvalir til vesturs, sem eru með svalalokun. Sér geymsla í sameign merkt: 0075, skráð 8,5 fm, og bílastæði merkt: B26. Hönnunarþema íbúðar er Bjarmi (sjá mynd).  *** Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Aðalstein Bjarnason, fasteignasali í GSM: 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is ***

    Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
    Sækja söluyfirlit HÉR

    Heklureiturinn. 
    Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu.

    Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur.

    Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025.
    Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað.

    Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens. 

    Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

    Skipulag:
    Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168.

    Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.

    Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

    Hönnun:
    Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

    Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
    Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*

    Verð
    124.900.000 kr.
    Sölumaður

    Aðalsteinn Bjarnason

    7733532adalsteinn@fstorg.is
    Stærð113 m²
    Herbergi4
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað