TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Laugavegur 168 íb607 heklureitur
    Stækka
    Laugavegur 168 íb607 heklureitur - mynd 2
    Laugavegur 168 íb607 heklureitur - mynd 3
    Laugavegur 168 íb607 heklureitur - mynd 4
    Laugavegur 168 íb607 heklureitur - mynd 5
    105 Reykjavík (Austurbær)

    Laugavegur 168 íb607 heklureitur

    169.900.000 kr.
    Stærð114 m²
    Herbergi4

    Um eignina

    *** Bókið skoðun fyrir allar íbúðir að Heklureit í S: 844-6516 ***
    Ragnar Guðmundsson og Fasteignasalan TORG Kynna: Glæsileg 3ja-4ra herbergja útsýnisíbúð á 6. hæð merkt 607, með stórum þaksvölum til suðurs (Skráðar 32.8 fm.) Gert er ráð fyrir heitum pott á þaksvölum og sérmerkt stæði er í bílageymslu. Eignin er alls skráð 114.3 fm að stærð og skiptist í anddyri, eldhús, alrými með góðu og stofu- og borðstofuplássi ásamt útgengi út á þaksvalir, hjónsvítu með sér baðherbergi með sturtu, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu, sjónvarpsstofu sem auðvelt væri að breyta í 3ja svefnherbergið, sér geymslu í sameign merkt: 0020, skráð 11.0 fm. auk bílastæði merkt nr. B20, Gert er ráð fyrir heitum pott á þaksvölum. 
    Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Ragnar Guðmundsson, fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

    Sækja söluyfirlit HÉR

    Heklureiturinn. 
    Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu.

    Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur.

    Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025.
    Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað.

    Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens. 

    Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

    Skipulag:
    Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168.

    Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.

    Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

    Hönnun:
    Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

    Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
    Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*

    Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Ragnar Guðmundsson, fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

     

    Verð
    169.900.000 kr.
    Sölumaður

    Ragnar Kristján Guðmundsson

    8446516ragnar@fstorg.is
    Stærð114 m²
    Herbergi4
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað