
Glæsilegar svansvottaðar íbúðir í Hafnarfirði til sölu og afhendingar strax! Afhendast fullbúnar með gólfefnum.
Áshamar
Fullbúnar íbúðir til sölu, til afhendingar strax!
Til sölu glæsilegar íbúðir við Áshamar 2-10 í Hamranesi í Hafnarfirði. Í húsunum eru 140 íbúðir, allt frá tveggja herbergja til fjögurra herbergja íbúða. Íbúðirnar eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi – afhendast fullbúnar með gólfefnum. Glæsilegt hverfi í nágrenni við stórkostlega náttúru, Hvaleyrarvatn, Helgafell, Kleifarvatn o.fl.
Svansvottaðar íbúðir
Svanurinn er norrænt vottunarkerfi sem leggur áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum bygginga og bæta auðlindanýtingu. Svansvottun gerir ríkar kröfur til orkunýtingar byggingar, gæðastjórnun í byggingarferlinu og notkun öruggra og umhverfisvænna efna í byggingar.