
Glæsilegar svansvottaðar íbúðir í Hafnarfirði
Áshamar 12-26 í Hamranesi er kjarni sex nútímalegra fjölbýlishúsa með 154 íbúðum í hverfi þar sem þegar hefur byggð upp þjónusta fyrir íbúa. Byggingarnar eru Svansvottaðar.
Vellirnir og Skarðshlíð skarta tveimur grunnskólum og fjórum leikskólum en einnig er gert ráð fyrir að það komi nýr grunnskóli og tveir fjögurra deilda leikskólar, auk hjúkrunar- og heilsugæslustöðvar í Hamranesið.
Íbúðirnar eru tveggja til fjögurra herbergja og gefa möguleika á að bæta við herbergi. Hér er breitt úrval fyrir allar gerðir fjölskyldna þar sem hugað er að öryggi í umferðinni með góðum göngustígum og gangnakerfi. Húsin eru nærri náttúruperlum sem eru vinsælar til útivistar.