TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Vorbraut 39
    Stækka
    Vorbraut 39 - mynd 2
    Vorbraut 39 - mynd 3
    Vorbraut 39 - mynd 4
    Vorbraut 39 - mynd 5
    210 Garðabær

    Vorbraut 39

    229.000.000 kr.
    Stærð270 m²
    Herbergi7

    Um eignina

    Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt endaraðhús á einstökum útsýnisstað í Garðabæ. Um er að ræða eign sem er skráð skv fmr 270fm og þar af er bílskúr 24,8fm. Um er að ræða 6. herbergja raðhús á tveimur hæðum með fjórum svefnherbergjum og tveimur stofum. Húsið er mjög vandað, staðsteypt, einangrað að utan og með vandaðri álklæðningu. Loftskiptikerfi er í húsinu, mikil lofthæð, gólfhitastýring, hjónasvíta og gólfsíður horngluggi án pósta í miðju er í stofunni sem gefur eigninni einstakan svip og glæsilegt útsýni. Tveir afhendingarmöguleikar eru í boði, annars vega fullbúið hús að innan, og svo hins vegar tilbúið til innréttinga, lóð frágengin að framan, hellulagt með hitalögn og grófjönuð lóð að aftan. sjá nánar skilalýsingu seljanda.
    Verð tilbúið til innréttingar, kr. 229.000.000,-
    Verð fullbúið að innan, kr. 259.000.000,-

    Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

    Eignin skiptist eftirfarandi: Komið inn á efri hæð. Gott anddyri með fataskáp, Eldhús, gestasalerni, Borðstofa og stofa, með útgengi út á svalir. Glæsilegt útsýni yfir golfvöll GKG yfir til Vífilsstaðavatns, til suð suð-vesturs. Stigi niður á neðri hæð. Neðri hæð: Gangur með útgengi út í garð. Sjónvarpshol, baðherbergi, Þvottaherbergi, 3 svefnherbergi auk hjónasvítu með baðherbergi og fataherbergi, og útgengi út í garð / verönd. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

    Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
    1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
    2. Þinglýsingargjald kr.  3.800.- kr. af hverju skjali.  
    3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.  
    4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.

    Skoðunarskylda kaupanda:
    Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

    Forsendur söluyfirlits:
    Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

    Verð
    229.000.000 kr.
    Sölumaður

    Hafdís Rafnsdóttir

    8202222hafdis@fstorg.is
    Stærð270 m²
    Herbergi7
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað