TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Síðumúli 39
    Stækka
    Síðumúli 39 - mynd 2
    Síðumúli 39 - mynd 3
    Síðumúli 39 - mynd 4
    Síðumúli 39 - mynd 5
    108 Reykjavík (Austurbær)

    Síðumúli 39

    68.500.000 kr.
    Stærð73 m²
    Herbergi2

    Um eignina

    Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna með stolti: ***FRÁBÆR FYRSTU KAUP***
    Falleg, rúmgóð og vel skipulögð 73,5 m² tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í glæsilegu lyftuhúsi sem byggt var árið 2019. Eignin er staðsett á skemmtlegum stað á horni Síðumúla og Fellsmúla þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslun, veitingastaði og góðar samgöngur.
    ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS 

    Nánari lýsing eignarinnar:
    Inngangur.
    Snyrtilegur og sameiginlegur inngangur. 
    Forstofa með góðu skápaplássi. Bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda og skemmtilega heild. Eldhúsið er með fallegri innréttingu og góðu vinnuplássi.
    Stofa og borðstofa. Úr borðstofu er útgengt út á stóra viðarverönd með sérafnotarétti, sem býður upp á notalegt útisvæði til útiveru. Björt og góð stofa með parekti á gólfi. 
    Svefnherbergi. Rúmgott með góðu skápaplássi.
    Eldhús. Fallegt og opið eldhús útbúið góðri innréttingu með góðu hirsluplássi, helluborði, innbyggðri uppþvottavél, loftgleypir og bakaraofni. Eldhúsið er bjart með stórum gluggum við vaskinn. Eldhúskrókur. 
    Baðherbergi. Baðherbergið er með fallegri innréttingu, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara sem eru snyrtilega falin í lokuðum skáp.
    Íbúðin er í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu og myndavéladyrasíma.
    Þakverönd. Á annarri hæð hússins er stór sameiginleg þakverönd sem nýtist íbúum vel og býður upp á skemmtilegt útisvæði.
    Geymsla. Í kjallara er 3,9 m² sérgeymsla auk sameignar.
    Hér er um að ræða glæsilega og vel skipulagða íbúð á eftirsóttum stað þar sem öll helsta þjónusta, verslun, veitingastaðir, líkamsrækt og góðar samgöngur eru í næsta nágrenni. Frábær kostur fyrir þá sem leita að nútímalegri íbúð með stórri verönd og góðri sameign.
    ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS 

    Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

    1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
    2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
    3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
    4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
    5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

    Skoðunarskylda kaupanda:
    Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

    Forsendur söluyfirlits:
    Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
    í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
    Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
    Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
    Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra
     

    Verð
    68.500.000 kr.
    Sölumaður

    Svavar Friðriksson

    6231717svavar@fstorg.is
    Stærð73 m²
    Herbergi2
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað