TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Langalína 2
    Stækka
    Langalína 2 - mynd 2
    Langalína 2 - mynd 3
    Langalína 2 - mynd 4
    Langalína 2 - mynd 5
    210 Garðabær

    Langalína 2

    116.900.000 kr.
    Stærð156 m²
    Herbergi4

    Um eignina

    Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð við Löngulínu 2 í Sjálandshverfinu í Garðabæ.
    Eignin er alls 156,8 fm að stærð og skiptist í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, tvö baðherbergi, sér þvottahús innan eignar og geymslu í kjallara.
    Eignin er með suður verönd og stórum svölum ásamt tveimur bílastæðum í bílageymslu. 
    Fasteignamat 2027 verður 124.050.000.-
    Allar nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir í síma 863-8813 eða með tölvupósti: elka@fstorg.is eða Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is og

    Nánari lýsing eignar:
    Gengið er inn í forstofu með góðu skápaplássi. Hjónaherbergið er með fallegum innbyggðum fataskáp og útgengi út á góða verönd sem snýr til suðurs. Einnig er hægt að ganga út á sömu verönd úr öðru samliggjandi svefnherbergi sem er með hvítum háglans fataskáp með rennihurðum. Þriðja svefnherbergið er mjög rúmgott en það er einnig með hvítum háglans fataskáp með rennihurðum. Eldhúsið er opið með vandaðri eikarinnréttingu í bland við hvíta efri skápa. Stofa og borðstofa er í björtu og opnu rými með gólfsíðum gluggum og útgengi út á stórar svalir. Aðal baðherbergið er flísalagt ljósum flísum í hólf og gólf, með fallegri eikarinnréttingu, handklæðaofni, baðkari og sturtu. Gestasnyrting er síðan með hvítri innréttingu. Sér þvottaherbergi er innan eignar með borðplötu og skolvaski. Innfelld lýsing er í eigninni að hluta. Gólf eru lögð með eikarparket í öllum rýmum nema votrýmum en þar eru flísar. Gólf eru staðsteypt með hita og hljóðdempandi mottum til að tryggja góða hljóðeinangrun á milli hæða. Eignin er alls 156,8 fm að stærð en þar af er 11,8 fm geymsla í sameiginlegum kjallara. Einnig fylgir eigninni tvö merkt bílastæði í bílageymslu.

    Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is og Elka Guðmundsdóttir í síma 863-8813 eða með tölvupósti: elka@fstorg.is

    Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

    1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
    2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
    3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
    4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

    Skoðunarskylda kaupanda:
    Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

    Forsendur söluyfirlits:
    Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
    Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
    Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
     

    Verð
    116.900.000 kr.
    Sölumaður

    Darri Örn Hilmarsson

    7670000darri@fstorg.is
    Stærð156 m²
    Herbergi4
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað