Fasteignasalan TORG kynnir: Frábær 3ja herbergja íbúð á 3. hæð við Hjarðarhaga 28, Reykjavík. Eignin er skráð 99,7 fm þar af 11,3 fm geymsla. Eignin er vel skipulögð og telur tvö svefnherbergi sem bæði eru rúmgóð, baðherbergi, eldhús með borðstofu og rúmgóða stofu með útgengi á góðar svalir. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarmaður lgf. í síma 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is.Nánari lýsing: Forstofa með góðu innbyggðu fatahengi, viðarparket á gólfum.
Geymsluherbergi inn af íbúð í forstofu.
Svefnherbergin 2 rúmgóð með góðum skápaeiningum, viðarparket á gólfum.
Eldhús afmarkað, eldhúskrókur og borðstofa, útgengi á svalir. Flísar á gólfum.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Vegghengdur vaskaskápur, baðkar með sturtu og sturtugleri.
Stofa rúmgóð og björt með útgengi á svalir. Í dag nýtt sem auka svefnherbergi. Viðarparket á gólfum.
Svalir eru tvennar, annarsvegar frá stofu og hinsvegar frá eldhúsi.
Geymsla í kjallara 11,3 fm.
Þvottaherbergi sameiginlegt í kjallara.
Í sameign er einnig barna-leikherbergi og vagna/hjólageymsla.
Samantekt: Um ræðir frábæra og vel staðsetta eign á þessum vinsæla stað í Reykjavík þar sem stutt er í allar helstu verslanir og þjónustu, svo sem leik- og grunnskóla, leiksvæði og fallegt umhverfi og náttúru. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarmaður lgf. í síma 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is.