*** ÞESSI ÍBÚÐ ER SELD*** Fasteignasalan TORG kynnir: Nýjar og vandaðar íbúðir með einstöku útsýni í Garðabæ. Kynntu þér heimasíðu verkefnisins hér.
Íbúð 101 er 4ja herbergja með stæði merkt B10 í lokuðum bílakjallara og glæsilegu útsýni yfir borgina og til fjalla. Eignin er skráð 127,2fm þar af 12,2fm sérgeymsla.
Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð í fjögurra hæða lyftuhúsi með bílakjallara. Frágangur er einstaklega vandaður, gólfhitakerfi, veglegar innréttingar frá Voke III með steinplötum í eldhúsi og flísalögðum votrýmum. Loftskiptikerfi er í öllum íbúðum. Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að bílastæðum á lóð. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og íþróttastarf. Golfvellir GKG í göngufæri ásamt fallegri náttúru og útivist við Vífilstaðavatn og Heiðmörk. Skilalýsingu og allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson löggiltur fasteignasali.