Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs kynna :
Gullfalleg 126,0 fermetra fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) með einstöku útsýni yfir borgina. Sér inngangur af opnum svalagangi við Árkvörn 2a í Ártúnsholti. Góðar svalir til suðausturs inn í bakgarð hússins. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Mjög rúmgott alrými með mikilli lofthæð sem skiptist í stofu, borðstofu og eldhús. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.isNÁNARI LÝSING : Forstofa: með gólfsíðum glugga, vinylflísar á gólfi.
Stofa: með gluggum til suð/austurs með útgengi út á góðar svalir, parket á gólfi.
Borðstofa: með gólfsíðum gluggum og parketi á gólfi. Einstakt útsýni yfir borgina til norð/vesturs út á sundin, að Akrafjalli, Esjunni og yfir miðborgina.
Eldhús: með fallegri endurnýjaðri ALNO innréttingu, tveir Gorenje ofnar innbyggð uppþvottavél ásamt innbyggðum kæliskápur, vinylflísar á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa mynda eitt rými, mikil lofthæð og afar bjart rými. Gangur: með parketi á gólfi.
Svefnherbergi I: með parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: með skápum á heilum vegg, parket á gólfi.
Baðherbergi: með baðkari og sturtuklefa, innréttingu við vask, gluggi á baði, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottaherbergi: rúmgott og staðsett inn af forstofu, handklæðaofn, opnanlegur gluggi, flísar á gólfi.
Sérgeymsla: er staðsett á jarðhæð innan sameignar og er hún ekki inn í FM tölu íbúðar. Einnig hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Húsið er byggt árið 1991 með hellulögðum stéttum og sameiginleg bílastæði fyrir framan hús. Mjög vinsæl staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Ártúnsholti í Reykjavík þar sem stutt er í grunnskóla og leikskóla. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Stutt er í helstu stofnæðar þar sem hverfið er afar vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is