TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Sóleyjarimi 3
    Stækka
    Sóleyjarimi 3 - mynd 2
    Sóleyjarimi 3 - mynd 3
    Sóleyjarimi 3 - mynd 4
    Sóleyjarimi 3 - mynd 5
    112 Reykjavík (Grafarvogur)

    Sóleyjarimi 3

    83.900.000 kr.
    Stærð99 m²
    Herbergi3

    Um eignina

    Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali kynna með stolti: ***50 ÁRA OG ELDRI - RÚMGÓÐ OG VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ Á FJÓRÐU HÆÐ MEÐ YFIRBYGGÐUM SVÖLUM OG SÉRSTÆÐI Í BÍLAKJALLARA ÁSAMT SÉRGEYMSLU***
    Um er að ræða 99,5m2, 3ja herb. íbúð, í góðu lyftuhúsi, á fjórðu hæð með yfirbyggðum svölum, sérgeymslu í sameign og merktu bílastæði í bílastæðahúsi. Byggingin er þekkt fyrir góða samstöðu eigenda og vel rekið húsfélag. Sameiginlegur inngangur inn í fjölbýlishúsið. Forstofa, tvö rúmgóð svefnherbergi, stofa, borðstofa, eldhús, þvottahús, baðherbergi, yfirbyggðar svalir, sérgeymsla og bílastæði. Eigandi hefur gert íbúðina töluvert mikið upp. Fjögur hleðslustæði eru fyrir framan húsið sem eigendur geta nýtt sér. 
    ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS. 

     

    Nánari lýsing eignar: 
    Forstofa. Rúmgóð forstofa með stórum fataskáp. Flísar á gólfi. 
    Svefnherbergi. Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi. 
    Stofa. Björt og afar rúmgóð stofa. Útgengt á yfirbyggðar svalir með útsýni. Búið er að endurnýja svalalokanir. 
    Borðstofa. Rúmgóð og björt. 
    Eldhús. Opið og stórt eldhús með hvítri háglans innréttingu. Helluborð og loftgleypir. Uppþvottavél er inn í innréttingu. Stór ísskápur sem fylgir með. Bakaraofn í vinnuhæð. 
    Baðherbergi. Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtu. Falleg innrétting með speglaskáp og með upphengdu salerni.
    Þvottahús. Sérþvottahús er innan íbúðar. Flísar á gólfi og gott hillupláss. 
    Geymsla. Sérgeymsla er í sameign sem telur 7.2m2.  
    Bílastæði. Sérmerkt bílastæði er í hálfopnum bílakjallara. Búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. 
    Sameign. Hjólageymsla er í sameign. 
    Sóleyjarimi 3 er gott lyftuhús með vel reknu húsfélagi. Stutt er í útivist, sundlaug, verslanir og aðra þjónustu. Stutt er í félagsmiðstöðina á Borgum. Sóleyjarimi er þekkt fyrir góða samstöðu íbúðareigenda.
    ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS. 

    Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
    1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
    2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
    3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
    4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
    5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

    Skoðunarskylda kaupanda:
    Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

    Forsendur söluyfirlits:
    Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
    í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
    Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
    Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
    Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.

     

    Verð
    83.900.000 kr.
    Sölumaður

    Svavar Friðriksson

    6231717svavar@fstorg.is
    Stærð99 m²
    Herbergi3
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað