TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Laugavegur 170 íb705 heklureitur
    Stækka
    Laugavegur 170 íb705 heklureitur - mynd 2
    Laugavegur 170 íb705 heklureitur - mynd 3
    Laugavegur 170 íb705 heklureitur - mynd 4
    Laugavegur 170 íb705 heklureitur - mynd 5
    105 Reykjavík (Austurbær)

    Laugavegur 170 íb705 heklureitur

    320.000.000 kr.
    Stærð206 m²
    Herbergi5

    Um eignina

    Fasteignasalan TORG kynnir: Nýjar íbúðir á Heklureit að Laugavegur 170 í Reykjavík. Um er að ræða glæsilega íbúð á 7. hæð og efstu hæð með þakgarði og möguleika á heitum potti. Íbúð merk 705. Íbúðin er 4-5 herbergja með 2-3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, þvottahúsi, skrifstofu, búri innaf eldhúsi, stofa, og eldhús í opnu rými með rennihurð út á rúmgóðan þakgarð. Bílskúr í bílageymslu fylgir með íbúðinni ásamt geymslu og 2 stæði í bílageymslu sem fylgja íbúðinni, merkt B10 og B20.  Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Margrét Rós Einarsdóttir, fasteignasali í GSM: 856-5858 eða margret@fstorg.is

    Sjá hér nánar heimasíða fyrir Heklureitinn
    Sækja hér söluyfirlit 

    Nánari upplýsingar: Í eldhúsi er eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr StudioLine gerðinni, en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna sérlega þægilega og ánægjuríka. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar.
    Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði. 
    Íbúðirnar á efri hæðum, hafa einstakt útsýni til fjalla og yfir borgina. 
    Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 
    Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
    Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 

    Skipulag: Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrstu húsin sem nú er í byggingu eru Laugavegur 168 og Laugavegur 170.
    Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.
    Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

    Hönnun: Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

    Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
    Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*
    Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Margrét Rós Einarsdóttir, fasteignasali í GSM: 856-5858 eða margret@fstorg.is
     

    Verð
    320.000.000 kr.
    Sölumaður

    Margrét Rós Einarsdóttir

    8565858margret@fstorg.is
    Stærð206 m²
    Herbergi5
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað