TORG Real Estate Logo
FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    TORG Real Estate Logo
    FasteignasalarSöluskráVerkefniUm okkurSkrá eign
    Vorbraut 1 - íb 102
    Stækka
    Vorbraut 1 - íb 102 - mynd 2
    Vorbraut 1 - íb 102 - mynd 3
    Vorbraut 1 - íb 102 - mynd 4
    Vorbraut 1 - íb 102 - mynd 5
    210 Garðabær

    Vorbraut 1 - íb 102

    89.900.000 kr.
    Stærð85 m²
    Herbergi3

    Um eignina

    Fasteignasalan TORG kynnir í sölu íbúðir við Vorbraut 1 í Hnoðraholti Garðabæjar  -  Um er að ræða glæsilegt sjö íbúða lyftufjölbýli þar sem öllum íbúðum er skilað með sérsmíðuðum innréttingum og vönduðum tækjum ásamt því að allt ytra birgði húsins er gert eins viðhaldslétt og kostur er.  Allar íbúðir eru 3ja herbergja, þ.e. með 2 svefnherbergjum.  Öllum íbúðum fylgir stæði í opinu bílaskýli en auk þess fylgir tveimur íbúðum bílskúr sem innbyggður er í húsið.  Íbúðirnar afhendast fullbúnar með sérsmíðuðum loftháum innréttingum og skápum í viðarliti frá Arens.  Íbúðir afhendast án gólfefna en á baðherbergjum og í þvottahúsum verða flísar.  Gólfsíðir gluggar eru í öllum íbúðum og þar sem húsið stendur ofarlega á holtinu þá er glæsilegt útsýni úr þeim flestum.  Upphitun íbúða er með gólfita og ráð gert fyrir snóbræðslulögn við húsið.  Íbúðir á 1. og 2. hæð við SV-horn eru afhentar með svalalokun.  -  Hnoðraholt er spennandi og vaxandi hverfi á góðum stað innan höfuðborgarsvæðisins nálægt helstu stofnbrautum. Stutt í náttúruna, Vífilstaði, Heiðmörk og góða golfvelli, íþróttahúsið Miðgarð, Smáralind og skóla.  -  Allar nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Bjarna lgf. í síma 773-3532 eða email: adalsteinn@fstorg.is.

    *** SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA EINKASKOÐUN ***

    Íbúð 102: Glæsileg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með svalalokun, skráð stærð er samtals 85,40 fermetrar.

    Forstofa/anddyri: Með loftháum fataskápum.
    Hjónaherbergi: Stórt herbergi með loftháum fataskápum yfir heilan vegg.
    Svefnherbergi: Ágætt auka herbergi með loftháum fataskápum.
    Alrými: Stórt og opið rými sem telur bæði eldhús og stofu. Eldhúsið er opið með eldunareyju og skilast með vönduðum tækjum frá AEG. Gólfsíðir gluggar á tvenna vegu hleypa mikilli birtu í rýmið. Útgengi á svalir og sérafnotareit sem snýr í suð-vestur.
    Baðherbergi/þvottahús: Rúmgott baðherbergi með þvottahúsi inn af. Fallegar flísar á gólfi og veggjum að hluta til. Vegghengd salernisskál, walk-in sturta, handlaug felld ofan í borðplötu.
    Sérgeymsla: 2,9 fermetra sérgeymsla inn af sameignargangi á jarðhæð hússins fylgir íbúðinni.
    Bílastæði: Sérmerkt stæði í opnu bílskýli á lóðinni fylgir íbúðinni.

    *** SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT ***

    Arkitektar og aðalhönnuðir: Sen&Son arkitektar ehf. 
    Verkfræðihönnun: NNE ehf. 
    Hljóðráðgjöf: Myrra hönnunarstofa ehf. 
    Brunahönnun: Brunahönnun slf. 
    Byggingaraðili: Hús og Jörð ehf. 

    Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
    Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
    Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
    Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
    Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
     

    Verð
    89.900.000 kr.
    Sölumaður

    Aðalsteinn Bjarnason

    7733532adalsteinn@fstorg.is
    Stærð85 m²
    Herbergi3
    StaðaTil sölu
    FASTEIGNASALAN TORG

    Fagleg fasteignasala sem sérhæfir sig í úrvals eignum og byggingarframkvæmdum.

    Flýtileiðir

    • Forsíða
    • Fasteignasalar
    • Verkefni
    • Um okkur
    • Hafa samband

    Hafðu samband

    • Garðatorg 5
      210 Garðabær
    • +354 520 9595
    • info@fstorg.is

    Opnunartímar

    Skrifstofan
    • Mán – Fim09:00 – 16:00
    • Fös09:00 - 15:00
    • LaugardagurLokað
    • SunnudagurLokað
    FASTEIGNASALAN TORG
    +354 520 9595info@fstorg.isGarðatorg 5, 210 Garðabær
    ForsíðaFasteignasalarVerkefniUm okkur

    © 2026 Fasteignasalan TORG. Öll réttindi áskilin.

    Garðatorg 5, 210 Garðabær · kt. 670618-0880

    Hafa samband
    Opnunartímar
    Mán – Fim09:00 – 16:00
    Fös09:00 - 15:00
    LaugardagurLokað
    SunnudagurLokað